Thursday, January 29, 2015

Desember og janúar :)

Ekki byrjar þetta vel! Ég er búin að stelast nokkrum sinnum út í búð að kaupa garn. Gafst eiginlega bara upp á þessu og byrjaði að svindla með því skilyrði að ef það vantaði t.d. annan litinn af tveimur í verkefni þá mætti kaupa. Keypti síðan líka í ný verkefni :) Vænti þess að ég verði tekin fyrir í þætti af Hoarders eftir nokkur ár. Oh well.

Ég náði samt að klára eitt óklárað verkefni. Peysuna Afmæli sem ég byrjaði á rétt fyrir þrítugsafmælið mitt. Litirnir í uppskriftinni eru ótrúlega fallegir svo ég hélt þeim bara eins og þó að þetta hafi verið löng fæðing (bættist meira að segja við eitt barn og allnokkur kíló) þá er ég ótrúlega ánægð með hana og fegin að vera loksins búin. Ætla að fá lánað format sem ég hef séð á mörgum prjónabloggum og pósta garni, prjónum/nál og uppskrift við hvert verkefni.

Garn: Léttlopi
Prjónar: 4,0 mm
Uppskrift: Afmæli
Lára fékk líka jólahúfuna úr Maríu heklbók. Ég notaði Smart garn sem ég fann inni í skáp og við rétt náðum að taka jólakortamyndir af Láru með húfuna en síðan hvarf húfan og hefur ekki fundist aftur þrátt fyrir mikla leit! Þetta er vægast sagt dularfullt, kannski Stúfur hafi stolið henni? :)

Garn: Smart
Nál: 5.0 mm
Uppskrift: Stúfur úr Maríu heklbók

Ég gerði líka nokkrar lopapeysulyklakippur úr léttlopa sem ég gaf síðan helstu prjónakerlingunum sem ég þekki í jólagjöf. Það er ótrúlega skemmtilegt að prjóna þessar lopapeysur og þær taka svona hálft sjónvarpskvöld (ég prjóna ekki hratt). Mjög gott að nýta afganga í þetta.


Garn: Léttlopi
Prjónar: 3,0 mm
Uppskrift: Minilopapeysa Keyring

Þá er komið að svindlinu :p Mig langaði svo að gefa Freyju vinkonu minni sjal og þegar ég sá þessa dásamlegu litaskiptingu í A4 kolféll garnbindindið :( Garnið heitir Järbo Stella og er úr akrýl. Vanalega þoli ég ekki akrýl en þetta var frekar mjúkt og ekki svo gervilegt. Ég heklaði kríu (Þóra heklbók) með nál nr. 6 og gaf svo Freyju í jólasaumó. Held hún sé ánægð, það fór henni alla vega mjög vel :)

Garn: Järbo garn Stella
Nál: 6.0 mm
Uppskrift: Kría úr Þóru heklbók

Garnsukkið stoppaði ekki þar, ó nei. Hosuband var á tilboði í Hagkaup og mig langaði rosalega að gera jólatrésdúk úr Drops dagatalinu svo ég keypti allt rauða og hvíta hosubandið á þriðja í jólum og sat við fram að áramótum :) Garnið kláraðist svo á lokametrunum en ég fann aðra dokku með sama lot-nr. og náði að klára. 
Ertu ekki að djóka?
Garn: Tvöfalt hosuband
Nál: 7,0 mm
Uppskrift: Jóladagatal Drops 2014
Svo þetta mjakast :) Núna er ég að prjóna lopapeysu á Láru og reyna að klára blómagolluna úr samprjóni Handprjóns.is frá því í ágúst. Ugh, hvað það er leiðinlegt. Edda vinkona ætlar að hjálpa mér aftur af stað þar :) Ætla að reyna að svindla ekkert þangað til næst ;)

Sunday, November 2, 2014

Fyrsta skrefið er að viðurkenna vandann..


Flestir prjónarar/heklarar kannast við það að eiga slatta af garni uppi í skáp og þar er ég sko engin undantekning. Garn er nú einu sinni svo dásamlega litfagurt og mjúkt, næstum eins og nammi. Þegar ég bjó í Bandaríkjunum keypti ég alltaf lopa í Íslandsheimsóknum (skortshugsun) og vinir og ættingjar komu vanalega út með nokkrar dokkur til að gleðja og þakka fyrir sig. Lopinn nýttist svo vel sem einangrun í búslóðarkassana þegar ég flutti heim og auðvitað varð að kaupa smá bandarískt garn sem ekki var hægt að fá á Íslandi (skortshugsunin strikes again). Hmm, best að telja aðeins. Fimm plastkassar og fullt af random pokum fullum af garni og hálfkláruðum verkefnum. Fokk!
Þetta er ekki einu sinni allt :S
Árið 2014 verður sko stashbustað í drasl! Nú er kominn nóvember og það hefur bæst við heill IKEA poki af jú, garni og nýjum verkefnum.
Nýja garnið er í glæra IKEA pokanum, og kannski smá lekið yfir í hinn pokann.
Svo ég ákvað að byrja að blogga aftur til að veita mér smá aðhald. Bannað að kaupa nýtt garn en það má býtta eða fá gefins. Ég ætla að byrja á að klára nokkur ókláruð verkefni og svo vinda mér í kassana. Nýtni, sparnaður og ég fæ að nota allt fallega garnið mitt. Í gær sat ég og skoðaði í kassana og mér datt eitthvað í hug fyrir flestar dokkurnar svo þetta ætti ekki að verða nein kvöð :) Fimm ára planið er svo að eiga sætan lítinn Billy skáp af garni og litla körfu fyrir verkefni í vinnslu. *brettauppermarogspýtaílófa* Let's do this!